Mömmu barbie

halló

06.12.2006 12:41:50 / rakelola

Cultivating Customer Relationships (markaðsfræði próf á föstudaginn)

Hæ hó, hæ hó, við höfum fengið nóg... AF PRÓFALESTRI!!!!!

Cultivating Customer Relationships... maximizing customer calue means cultivating long-tearm customer relationships. In the past producers customized their blabidí blabidí blabidí bú... hvað í fjandanum þýðir "cultivating" ???

Guð minn góður hvað ég hata próf! Ég er semsagt í miðjum prófundirbúningi. Ég er búin að fara í fjögur próf af sex þannig að sem betur fer er ekki mikið eftir. Næst á dagskránni er markaðsfræðin, sem ég er svo sem þokkaleg í, en hvernig á máður að læra undir þetta... það er ömurlegt að fara í próf í svona kjaftafögum... í stærðfræðinni er þetta í rauninni auðveldara því að þar er bara eitt eða hugsanlega kannski tvö rétt svör, en í þessum blessuðu kjaftafögum þá er hægt að segja sama hlutinn á svo margann hátt. Og svo snýst þetta svo mikið um hvað þér finnst. Hvernig er hægt að segja að það sem að einni manneskju finnst um eitthvað sérstakt málefni sé RANGT... hafa ekki allir rétt á sinni skoðun??? ha??? djísös...

En fyrir utan prófalesturinn gengur svo sem allt alveg ágætlega... maður er byrjaður snemma í jólaundirbúning... ég er semsagt búin að skrifa á jólakortin og búin að ÁKVEÐA allar jólagjafirnar í ár... þó maður sé kannski ekki búinn að kaupa þær :P en ég er að fara til London til mömmu og pabba eftir prófin þannig að ég ætla að kaupa allar jólagjafirnar þar...

Jájá... og Clara Hrönn hefur það fínt... hún er búin að vera pínu óþekk undanfarið... hún er því miður ekki nógu gömul til að skilja það að hún fær bara kartöflu í skóinn ef að hún er ekki þæg þannig að hún er búin að fara annsi oft í skammakrókinn í þessarri viku... ætli hún sé ekki bara að reyna að fá smá athygli þar sem að foreldrar hennar eru svo upptekknir af þessum blessuðu skólabókum sínum og við höfum því miður ekki jafn mikinn tíma fyrir hana og við vildum :(

Oh well... ætli maður verði ekki að halda áfram með prófalesturinn... 

ovú :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 13:40:32 / rakelola

Skoðannakönnun

Ferð þú á Roskilde Festival???

Já auðvitað - rock on!!! - 65%
Hmmm.... - 5%
Nei, ég er lúði - 30%

Alls tóku 42 þátt í þessarri skoðannakönnun!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 23:20:54 / rakelola

SOOOOOOOOOOOORRY!

Jæja, jæja góðir hálsar... það er víst að ég hef því miður ekkert bloggað síðan í júní og fyrir það biðst ég innilegrar afsökunar! Í sárabætur smelli ég inn nokkrum færslum næstu dagana sem að hefðu átt að vera komnar inn fyrir löngu síðan...

Roskile...

Já, ég fór semsagt til Danmerkur í lok júní til að fara á Roskilde festival... síðast sagði ég skilið við ykkur þegar að ég var nýbúin að skutla Pálma á flugvöllinn en 28. júní lagði ég síðan af stað í ferðalag mitt til Danmerkur. 

Ég lagði semsagt af stað á keflavíkurflugvöll eldsnemma þennan miðvikudagsmorgun. Flugvélinni seinkaði auðvitað eins og öllum flugvélum Icelandair, en þó aðeins í 15mín. í þetta skiptið. Á flugvellinum hitti ég fyrir öruglega tuttugu manns sem voru á sömu leið. Þegar til Danmerkur var komið eyddi ég nokkrum klukkutímum á Strikinu og hitti þar fyrir Birnu Kristínu og Eddu, verslaði smá og hélt síðan af stað til Roskilde festival með lest. Í Roskilde tók Pálmi á móti mér og ég kom mér fyrir og svona, síðan var haldið í bæinn til að kaupa í matinn. Eftir það tók auðvitað bara drykkjan við...

Hátíðin var sett á fimmtudeginum með söngkonunni Anne Nightingale (hef ekki hugmynd hver það er... anyway...). Við fórum reyndar ekki á neina tónleika þann daginn því að við föttuðum ekki að við værum að missa af Sigurrós fyrr en það var of seint.

Á föstudaginn var nú aðeins meira að gerast og við byrjuðum daginn á að fara í bæinn og kaupa í matinn... svo skelltum við okkur á Jensens Bøffehus og hámuðum í okkur tvö tonn af BBQ spairribs... Mmmmmmmmmmmmmmmm... Þegar aftur var komið í tjaldbúðirnar var auðvitað fyrst á dagskrá að opna eitt stykki bjór, fara í lopapeysurnar sem ég prjónaði og singja síðan og tralla hástöfum....

Bob Dylan var síðan að spila um sjö leytið og strákarnir voru aðvitað búnir að hlakka heilmikið til, en þegar uppi var staðið var hann bara hundleiðinlegur, spilaði ekkert af “hitturunum sínum og strákarnir urðu auðvitað vangefið ósáttir og drusluðu sér bara aftur í tjald í fílu... Þeir jöfnuðu sig samt (sem betur fer) þegar þeir fengu meiri bjór í tjaldinu þannig að við gátum farið á Scisor Sisters sem spiluðu á Orange stage kl. eitt eftir miðnætti... Það voru GEÐVEIKIR tónleikar. Ég, Pálmi og Eiki dönsuðum og hoppuðum eins og vitleysingar alla tónleikana, og auðvitað hringdi ég í hana Sollu mína þegar að þeir spiluðu “filthy, gorgeous” til að leyfa henni að heyra í þeim.

Laugardagurinn var bara rólegur því það voru eiginlega engin bönd sem okkur langaði að sjá, nema Hlynur sem fór á einhverja tónleika um kvöldið. En aftur á móti held ég að þetta hafi samt verið skemmtilegasta kvöldið. Við vorum bara uppí tjaldi allt kvöldið og drukkum, sungum og trölluðum og löðuðum að okkur allskonar fólki sem tók þátt í djamminu með okkur... það var ótrúlega gaman!  

Annamesti dagurinn var svo sunnudagurinn. Við höfðum ákveðið að fara til Cøben eftir síðustu tónleikana þannig að dagurinn byrjaði því að pakka öllu dótinu okkar, nema tjöldunum þannig að það væri bara tilbúið til brottfarar. Svo ætluðum við að fara með dótið okkar í “left luggage” en það var auðvitað allt fullt þegar að við komum með allt draslið okkar. Strákunum hafði auðvitað fundist geðveikt sniðugt að hoppa ofaná tjöldin og berja þau niður með einhverjum járnstöngum sem þeir höfðu brotið af pavaloninu okkar þannig að þau voru ónýt. Þannig að við neyddumst til að finna okkur bara eitthvað yfirgefið tjald til að geyma dótið okkar í á meðan að við vorum á tónleikum.

Út af einhverjum ástæðum var hátíðin þannig skipulögð að mörg stóru númeranna voru á sunnudeginum og á mjög svipuðum tíma, þannig að á Sunnudeginum fórum við á The Strokes og Placebo. Mig langaði líka mikið á Franz Ferndinand, en þar sem að Roger Waters – dark side of the Moon var að spila beint á eftir honum fórum við í röð til að komast inn í pittinn þegar að Franz Ferndinand voru að spila. Semsagt... ég missti af þeim. Það var samt sem áður ALVEG þess virði að missa af þeim og bíða í röð í tvo og hálfan tíma í steikjandi hita og sól til að sjá Roger Waters því að hann var focking GEEEEEEEEEEEEEEEEEEEÐVEIKUR!!!!!!!!!!!!!

Eftir Roger Waters lölluðum við svo í tjaldið til að ná í dótið okkar og svo til baka til að fara í lestina, en þá var bara röð til fjandans því að það höfðu auðvitað allir fengið sömu delluna og við... En við komumst nú samt með lestinni og vorum komin til Cøben upp úr kl. 03.30 og vorum nú heppin því við vorum ekkert lengi að finna okkur hótel og GUÐ MINN GÓÐUR hvað það var nú gott að sofa í RÚMI með alvöru DÝNU og SÆNG... og sérstaklega að komast í almennilega STURTU!!!!!! 

Við tókum svo mánudaginn bara rólega... vorum búin að tékka okkur út af hótelinu fyrir hádegi, og fórum þá með farangurinn okkar á Hovedbanegården þar sem að við geymdum hann á meðan að við fórum í smá verslunarleiðangur á Strikinu þar sem að við eiddum ALLT of miklum peningum! Við vorum síðan mætt upp á flugvöll kl. hálf átta en vegna verkfalls hjá starfsmönnum flugavallanna (bæði í Cøben og á Íslandi) var okkur ekki hleypt í tékk inn fyrr en kl. tíu og fórum svo ekki í loftið fyrr en upp úr miðnætti þannig að það var ekkert mætt í vinnu daginn eftir...

Jæja... ekkert meira í þetta skiptið
Leiter!

 

Anna Rakel
xxx

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 08:20:16 / rakelola

Gott eða vont

Gott: CLARA HRÖNN ER KOMIN HEIM :haha:
Vont: Pálmi er farinn til Køben :(
 
Clara greyið er reyndar ennþá veik... Hún er með þrjár litlar frunsur á vörinni og hökunni og öll út í litlum bólum á tungunni... En hún er samt ofboðslega dugleg miðað við hvað hún er slöpp. Hún á rosalega erfitt með að borða en tínir samt upp í sig eitt og eitt rice crispies. Svo drekkur hún einstaka svalafernu og tekur þá alla fernuna í einu! Svo orgar hún í tvær mínútur á eftir, en svo er það líka bara búið. Þetta er allt að koma hjá henni!
En já... Pálmi er í þessum skrifuðu orðum að fara í loftið og er á leiðinni til Kaupmannahafnar. Þar verður hann í þrjá daga ásamt Hlyn og Eika en á laugardagskvöldið verður stefnan síðan tekin á Hróarskeldubæ þar sem að tónleikar munu byrja um hádegisbilið á sunnudag. Upphaflega átti ég að verða samferða honum í dag, en vegna vinnunnar kemst ég ekki fyrr en næsta miðvikudag (28. júní) Ég er farin að hlakka skuggalega mikið til, og það var nú pínu súrt að þurfa að keyra til baka eftir að hafa skutlað manninum á flugvöllinn :whut: en hvað get ég sagt... thats life! Þannig að núna er maður bara mættur "fersk" í vinnuna (svaf í tvo tíma í nótt því Pálmi var að pakka og Clara gat ekki sofnað) og tilbúin í að takast á við alla þessa reikninga!
 
Over and out!


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.06.2006 15:19:48 / rakelola

Lasin lítil stelpa!

 

Clara Hrönn er mikið veik...

það kom í ljós að hún er ekki með eyrnabólgu, heldur er hún með herpés í munninum (ekki kynfæravörtur heldur sár innaná kinninni, svipað og frunsur) og greyið litla getur ekki borðað, drukkið, sogið pela né snuð!!! Þetta kom í ljós á fimmtudaginn í síðustu viku, þannig að Dísa hefur varla komist út af hótel herberginu sínu og öll ferðin er búin að vera hálf ónýt... Greyið Sigrún Gróa er víst búin að vera ein mest allan tíman! Ég er á geðveikum bömmer yfir því að hafa hleypt henni með þeim, bæði því þetta er búið að skemma ferðina svona, en helst út af því að ég get ekki verið hjá henni þegar henni líður svona illa :(
Aftur á móti hef ég það mér til máls að það voru þær sem að heimtuðu að taka hana með til Portúgal, og ég var á móti því alveg frá byrjun, en lét undan út af þrýstingi... Ég VISSI að eitthvað myndi koma fyrir... Ég fann það á mér! Mér finnst þetta samt vera mér að kenna... hún var komin með vírusinn áður en hún fór út, og ég var ekki búin að tékka á henni... Ég fór ekki með hana til læknis til að kíkja í eyrun áður en þær fóru út... Ég gerði barasta ekki neitt! Fór bara til Akureyrar að djamma!
Það sem mér finnst kannski verst í þessu öllu er að ég vissi ekkert að þetta væri að gerast... Ég var búin að hringja nokkrum sinnum í vikunni og það svaraði aldrei neinn, og hún var ekkert að hringja í mig eða pálma og segja mér frá þessu... Ég vissi bara ekki neitt fyrr en í gær!!! Sama hvort Dísa hafi verið að reyna að hlífa mér, eða vildi ekki að ég hefði óþarfa áhyggjur, þá er þetta samt sem áður dóttir MÍN... Ég á rétt á að fá að vita þegar að svona lagað gerist... Sérstaklega þegar þetta er eitthvað svona alvarlegt! Það hefði verið annað ef hún hefði fengið smá sólsting, eða niðurgang en þetta er eitthvað sem á eftir að bögga hana alla æfi... Þó að hún verði ekkert endilega alltaf með frunsu, en ef hún kemur einusinni þá er alltaf hætta á að hún komi aftur! Ég hef reyndar aldrei verið með frunsu en ég hef heyrt að þetta sé ógeðslega vont!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 15:49:03 / rakelola

*væl*

Clara er í Portúgal... og ekki ég! Hún fór með ömmu Dísu og Sigrúnu Gróu á aðfaranótt þriðjudagsins síðasta og kemur ekki heim fyrr en 20. júní!!!!! :cry:

Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera á daginn... vanalega er dagrútínan okkar eftirfarandi:

  • kl. 16.30 – Búin að vinna
  • Clara Hrönn sótt til dagmömmu
  • Líkamsrækt ef ég nenni
  • Heim – elda mat
  • Clara leikur sér í smá stund
  • Clara fer í bað
  • Clara leikur aðeins meira
  • Clara fer að sofa kl. 21.00
  • Ég ligg eins og klessa á sófanum í nokkrar klst.
  • Setja í eina þvottavél / uppþvottavél fyrir svefninn
  • Sofa uppúr miðnætti

En núna er Clara ekki einusinni á landinu og ég veit ekkert hvað ég á að gera af mér eftir vinnu!!! Reyndar er ég búin að vera geðveikt dugleg síðustu tvo daga... búin að setja upp gardínur í stofunni og inni hjá Clöru... búin að taka upp úr tveimur kössum í viðbót... búin að hengja upp myndir og þvo þvott á fullu...! 8|

Hmmmm.... kannski er bara ágætt að hún sé hjá ömmu sinni. Þá hef ég allaveganna tíma til að gera eitthvað á heimilinu... Jæja, það er samt hund fúllt og ógislega asnalegt að hafa hana ekki hjá sér... það er eitthvað svo dautt í húsinu!

   

 

Oh, well...

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 12:49:16 / rakelola

Ferðasaga !!!

 

Það er alltof langt síðan að ég bloggaði síðast! Ok reyndar var það í gær en það telst ekki með... Anyway! Fyrir mánuði síðan fór ég með Sollu til London. Við fórum bara tvær og skildum karlana eftir heima með barnið/köttinn og það var BARA gaman! Þetta var semsagt eftirfarandi:

Fimmtudagur 18. maí:

Ég gisti í Sandgerði hjá Sollu og Markúsi til þess að Pálmi þyrfti ekki að vekja Clöru til að geta skutlað mér út á völl morguninn eftir. Solla var að vinna til kl. 23.00 þannig að ég og Markús fórum bara á Mamma Mía og horfðum á undankeppnina fyrir Eurovision (mér fannst Silvía Night bara ógislega kúl... sama hvað hver segir!). Þegar Eurovision var búið fóum við svo að sækja Sollu og hana langaði að kveðja krakkana í Sandgerði (Nonni, Sunna o.fl.) þannig að við kíktum heim til Nonna og hittum þar nokkuð af fólki. Þetta fór auðvitað svo að við vorum í fjóra klukkutíma að "kveðja" þannig að við vorum ekki komnar heim til Sollu fyrr en kl. 2 um nóttina! Þá var haldið uppí rúm, kjaftatuskur eins og við erum fórum við náttúrulega ekki að sofa heldur þurftum ofboðslega mikið að tala saman!

Föstudagur 19. maí:

Jú við sofnuðum víst í ca. 45mín en vekjaraklukkan hringdi nebblega kl. 4.00. Þá var farið á fætur og í sturtu, reynt að pína ofan í sig ristað brauð með osti og svo hentum við okkur upp á flugvöll kl. 5.40 til að verða á undan flybus rútunni sem kemur kl. 6.00. Þar sem að Solla er að vinna hjá IGS vorum við á "frímiða" sem þýddi það að ef að vélin fylltist fengjum við ekki að fara með. Þegar við vorum svo að tékka okkur inn var okkur sagt að það væru tíu sæti laus í vélinni og ellefu skráðir á annaðhvort "frímiða" eða "hoppmiða" þannig að við vissum ekki hvort við fengjum sæti í vélinni. Síðan 20mín fyrir brottför fórum við upp á service desk Icelandair og fengum síðustu tvö sætin í vélinni!!! Ég held ég hafi aldrei verið eins stressuð!!!

Flugið gekk ágætlega og við lentum á Heithrow Airport kl. 12.45 og fórum þá beint heim til mömmu og pabba á Montpelier Walk, hentum dótinu okkar inn og fórum svo beint í Sally Beauty Store þar sem að Solla gat keypt sér alls konar hárgreiðslu- og nagladót. Þegar við komum heim ætluðum við svo að setja nokkrar strípur í hárið á mér (lýsa það aðeins) en þegar hún var búin að setja nokkrar í mig fannst henni bara miklu sniðugara að aflita það bara alveg!!! Þannig að ég varð platinum blond!!!

Um kvöldið fórum við svo auðvitað á djammið niður í bæ... við tókum leigubíl niður á Leister Squere og fórum á geðveikan stað sem heitir Zoo Bar, og auðvitað fundum við okkur bara einhverja stráka til að bjóða okkur í glas ;) Við hittum semsagt einn strák sem heitir Shawn og er frá Ástralíu. Hann og vinir hans voru þarna á barnum og fóru eitthvað að tala við okkur og eftir það þurftum við aldrei að taka upp veskið því við vorum alltaf komnar með annan bjór í hendina áður en við kláruðum þann fyrri. Þetta var ótrúlega skemmtilegt kvöld/nótt og við skriðum heim uppúr 8.30 á laugardags morguninn!

OK núna er ég búin að skrifa svo mikið að ég er komin með illt í puttana! Framhald eftir hádegi.....

*hádegishlé*

 

 

OK... Part 2 

 

 

Laugardagur 20. maí:
Við skriðum semsagt heim kl. 8.30 um morguninn, hentum okkur uppí rúm. Birta kom síðan og vakti okkur uppút hádegi og við stauluðumst framúr og í sturtu. Okkur var skítkalt og vorum við það að kvefast því að það var svo mikið rigning þegar við vorum á leiðinni heim um morguninn, að við gátum undið úr fötunum okkar! En það lagaðist allt við heita sturtu! Þegar við vorum tilbúnar fórum við með Birtu og Ólafi Orra á Yo Sushi! sem er sushi staður rétt hjá húsinu okkar, og átum eins mikið og við gátum í okkur troðið. Eftir matinn fóru krakkarnir heim og við Solla skelltum okkur á Oxford Street og vorum þar allt of lengi, en keyptum okkur samt ekkert merkilegt. Eiginlega bara skartgripi og nærföt. Þegar við komum heim pöntuðum við pizzu, horfðum á Eurovision og gerðum okkur tilbúnar fyrir kvöldið því við vorum á leiðinni á djammið aftur (of course) !
Þetta kvöldið vorum við ekki með neitt sérstaklega mikið af peningum á okkur þannig að við tókum bara leigubíl að Piccadilly Circus og ætluðum bara að labba restina þar til við kæmum að Zoo Bar, og þá gerðist það... Solla var að taka myndir af stóru bilboard merkjunum sem eru þarna og er ekki alveg að horfa fram fyrir sig, og hún steig á einhvern pínulítinn miða sem var á götunni og missti jafnvægið og FLAUG BEINT Á HAUSINN. Á miðjum Piccadilly Circus, kl. 22.30 á laugardagskvöldi... Það sáu þetta ALLIR og meira að segja LÖGGAN fór að hlæja! Hún greyið meiddi sig alveg því hún hélt á myndavélinni sinni og var þá ekkert að skella hendinni fyrir sig og lenti á úlnliðnum en hún stóð samt upp og fór bara að hlæja.
Ca. 2mín eftir að hún datt labbaði síðan upp að okkur gaur og bauð okkur afslátt inn á Zoo Bar, og svo þegar við stóðum í röðinni inn á staðinn kom gaurinn aftur með einhverja tvo aðra stráka í eftirdragi og bað okkur um að fylgja þeim inn á staðinn og við alveg... ummm.... jájá... alveg eins... og vissum ekkert hvað gaurinn var að pæla því þessir strákar voru alveg greinilega eldri en við! (Við komumst síðan að því seinna að á laugardögum er strákum ekki hleypt inn fyrir miðnætti nema í fylgd stelpu.) Síðan þegar við komum inn gufuðu þeir algjörlega upp þannig að við pældum ekkert meira í þeim og settumst bara niður með bjór, en eftir smástund var okkur farið að leiðast geðveikt. Þá sá Solla strákana aftur og samtalið fór semsagt svona:

S: Hey anna... þarna eru gaurarnir aftur
A: Ha, já gaurarnir sem við fylgdum inn
S: Einn þeirra er geðveikt sætur
A: heheh... á ég að ná í þá ;)
S: Já farðu...
A: Nei maður... ég ætla ekkert að labba bara upp að þeim eins og ég þekki þá ekkert
S: Jú kona!!!!! Ég mana þig!!!!!
A: Afhverju ferð þú ekki bara sjálf!
S: Af því að ég þori því ekkert... ur the crazy one!
A: Fine 

Þannig að ég stóð upp og labbaði upp að gaurnum sem ég hafði fylgt inn og sagði: "hey... weren't you supposed to be our dates???" og hann fór eitthvað að rausa um að við hefðum bara horfið þannig að ég sagði honum bara að koma og setjast hjá okkur, en nei... þeir komu ekkert bara tveir og settust hjá okkur... heldur kom hann og vinur hans sem voru samferða okkur inn, og svo tíu aðrir vinir þeirra í viðbót!!!
En þetta fór semsagt á sama veg og kvöldið áður, að eftir þetta var allt borgað fyrir okkur og við spjölluðum, drukkum, hlógum og dönsuðum eins og vitleysingar allt kvöldið/nóttina og þetta var pott þétt besta djamm sem ég hef nokkurntíman farið á. EVER!!!!! Svo skriðum við heim eins og sönnum íslendingum sæmir kl. 10.00 á sunnudagsmorguninn :haha:

Sunnudagur 21. maí:
Sunnudagurinn fór eiginlega ekki í neitt... við vöknuðum kl. 13.00 og byrjuðum að pakka (við fórum heim seinna um kvöldið) og tókum til ferðafötin og þess háttar. Þegar það var tilbúið fórum við í göngutúr (labba af sér þynnkuna ;) ) en þegar að við vorum búnar að labba í 10mín var allt í einu eins og það hefði verið hellt úr fötu og við vorum orðnar blautar í gegn eftir 30sek. þannig að við skriðum inn á eitthvað kaffihús og sátum þar í einhverja þrjá klukkutíma og töluðum um allt sem hafði gerst um helgina. Uppúr fjögur fórum við síðan heim í sturtu og gerðum okkur tilbúnar til að fljúga heim. Pabbi keyrði okkur út á völl kl. 19.00 og þar hittum við Grikklandsfarana og spjölluðum aðeins við þá um Eurovision og Silvíu Night og yfirgáfum svo þetta æðislega land England kl. 21.10  

Þetta var semsagt magnaðasta djamm helgi þessa árs (so far - Roskilde eftir 14daga) og OH MY GOD hvað ég get ekki beðið eftir haustinu því þá ætlum við aftur í nákvæmlega sama pakkann!!!!

Knús og kossar
Anna Rakel




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.06.2006 12:04:25 / rakelola

Þú veist að það er 2006 ef...

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir  tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu ... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.02.2006 20:56:51 / rakelola

Jæja elskurnar, veriði nú hreinskilin!!!

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifin/nn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

:haha: ;) :!:


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 16:53:48 / rakelola

Klukk, kítl og meira klukk

Ok... ég var klukkuð (aftur) og í þetta skiptið með öðruvíki klukki... þar sem að ég gleymdi að svara síðasta klukki ætla ég bara að svara öllum í einu

KLUKK NR. 1

  1. Ég fór á Corona-kvöld á Glaumbar eitt fimmtudagskvöld með Pálma, Hlyn og Eika og lagið okkar, footlose, kom á fóninn, þannig að Pálmi dró mig út á dansgólfið og í tryltri sveiflu skullum við saman og ég fékk blóðnasir og hann fékk risastóra kúlu... frekar vandræðalegt!
  2. Ég er fæ alveg ofboðslega mikið “simpathy pain” og á það til að grenja yfir öllu sorglegu! Ég byrja til dæmis að tárast yfir langflestum bíómyndum og mörgum sjónvarpsþáttum, og táraðist til dæmis yfir öllum lokaþáttunum í the bachelor...
  3. Þegar að ég var ólétt þá var svo mikið hormónaflæði í gangi að þetta “sympathy pain” þúsundfaldaðist, og kvöld eitt var ég í heimsókn hjá Sollu vinkonu, og þá ákváðum við að horfa á sjónvarpið og ég missti mig yfir Jerry McGuire, af öllum myndum. Þegar að Tom Cruise heldur ástarræðuna yfir Rene Zellwiger var ég orðin fimmföld í framan af tárum og ég fékk hálfgerðan ekka þegar að hún sagði “You had me at hello”
  4. Ég var einu sinni í búð með mömmu minni þegar ég var ca. fjögurra ára og ég var voðalega upptekin við að skoða barbídúkku sem að mig langaði rosalega mikið í. Svo fór ég til að spurja mömmu hvort hún vildi gefa mér dúkkuna, en í staðin fyrir að biðja voðalega fallega fór ég og togaði í pilsið hennar mömmu minnar og heimtaði dúkkuna og það fór eitthvað á þennan veg: “mamma ég vil fá þessa dúkku... þú átt að gefa mér hana því þú villt aldrei gefa mér neitt... mamma má ég, má ég, má ég... geeeeeeeeeeeeeerðu það?????” og á meðan að ég rommsaði þessu út úr mér togaði ég voðalega í pilsið hennar! Eftir þessa gríðarlegu ræðu mína leit ég svo bænaraugum upp á mömmu mína en mér til mikillar skelfingar þá var þetta ekki mamma mín heldur einhver kona sem ég hafði aldrei séð áður og mér brá svo mikið að ég fór að hágrenja og hætti ekki fyrr en mamma var búin að borga allt sem hún þurfti að kaupa og við vorum komin heim!
  5. Ég er ofboðsleg laumugelgja, (uppáhálds myndin mín er Clueless) og mér finst æðislegt að hitta Völu vinkonu mína, af því að við förum alltaf á svo hræðilegt gelgjuflipp og setjum Britney Spears á fóninn og verðum gjörsamlega geðveikar... Það er líka skemmtilegast í heimi að fara á djammið með henni og Pálma af því að þá förum við yfirleitt á eikkvern smápíkustað eins og Nelly’s eða Sólon or sumthin og gjörsamlega dönsum af okkur rassgatið

KÍTL

7 Hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:

  1. Ferðast í allar heimsálfurnar
  2. Eignast fleyri börn og giftast Pálma
  3. Búa í útlöndum
  4. Fara með pabba í safarí í Afríku
  5. Fara miklu oftar á roskilde festival
  6. Eyða sem miklum tíma með fjölskyldunni
  7. Fara í háskóla

7. Hlutir sem ég get gert

  1. Sungið og dansað
  2. Elskað
  3. Brosað, hlegið og skemmt mér og öðrum
  4. Haldið massagott party
  5. Verið dugleg í líkamsrækt, ef að ég nenni því
  6. Verslað í tólf tíma straight (ef ég á nóg pening til að eyða)
  7. Talað sex mismunandi tungumál

7. Hlutir sem ég get ekki gert

  1. Hlaupið lengi 
  2. Skilið stærðfræði
  3. Eldað (læt Pálma um það)
  4. Pissað standandi eða fengið standpínu
  5. Borðað MSG
  6. Flogið (literally)
  7. Fundið fleyri hluti til að skrifa hér....

7. Hlutir sem heilla mig við hitt kynið

  1. Sjálfstraust
  2. Húmor
  3. Danskunnátta
  4. Hreinskilni 
  5. Virðing
  6. Útlit (spilar notlega altaf aðeins inní)
  7. Að hann komi fram við mig eins og prinsessu

7. Frægir karlmenn/kvennmenn sem heilla mig

  1. Jhonny Depp – ouch...
  2. George Clooney
  3. Pierce Brosnan
  4. Angelina Jolie
  5. Jessica Alba
  6. Vin Disel – Grrrr...
  7. sir Michael Cane – helvíti flottur

7. Orð sem ég segji oftast

  1. Ha
  2. Í alvöru
  3. Skiluru
  4. Nei/Já
  5. Pálmi/Clara Hrönn
  6. Vaknaðu/Drullastu á lappir
  7. Ertekkað grínast?

7. manneskjur sem ég ætla að kítla

  1. Pálmi Gunnlaugur
  2. Birta
  3. Sigrún Gróa
  4. Unnur
  5. Sibbi og Arnar
  6. Vala mín
  7. Inga Júlía

KLUKK NR. 2

  1. Hvað er klukkan? 21:15
  2. Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? Hef ekki hugmynd... ábyggilega “Fille Kristiansdottir” eða “Stúlka Ingibjargardóttir” or sumthin...
  3. Hvað ertu kölluð? Anna Rakel
  4. Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? 20
  5. Hár? Dökkbrúnt og sítt niður á rass
  6. Göt? Sex göt í eyrunum, eitt í nafla og eitt í nefi (auk þessarra venjulegu)
  7. Fæðingarstaður? Lyon, France
  8. Hvar býrðu? Ummm... hjá tengdó en er að flytja á Gunnarsbraut 42, 105 Reykjavík 10.
  9. Uppáhalds matur? Fer eftir skapi, stað og stund
  10. Einhvern tíman elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Já, já og enn og aftur JÁ
  11. Gulrót eða beikonbitar? Gulrót (passa línurnar)
  12. Uppáhalds vikudagur? Föstudagur
  13. Uppáhalds veitingastaður? Zuma – GEÐVEIKUR japanskur staður í London 
  14. Uppáhaldsblóm? Öll hvít og bleik blóm
  15. Hvaða íþrótt finnst þér skemmtilegast að horfa á? Allan dans og listskauta
  16. Uppáhalds drykkur? Diet Coke
  17. Disney eða Warner Bros? Bæði betra 
  18. Uppáhalds skyndibitastaðurinn? Devitos og Red Chili
  19. Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Parket
  20. Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Brynhild Mathisen - norskukennari
  21. Í hvaða búð myndir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Úff... don’t tempt me!!!
  22. Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Fer á Segafredo, tölvunördast eða.................!
  23. Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Í hvaða stjörnumerki ertu? Frá ógeðslegum gaurum sem að eru að reyna við þig á einhverjum bar... jukk...
  24. Hvenær ferðu að sofa? Allt of seint
  25. Hver verður fyrstur til að svara þessu? Hehe... ekki hugmynd!
  26. Hver af þeim sem þú klukkar er líklegastur til að gera þetta ekki? Pálmi... hann þolir ekki svonalagað
  27. Uppáhalds sjónvarpsþáttur? So you think you can dance, Litle Britain, Rockstar INXS, Murder City, Silent Witness, C.S.I og nokkrir fleyri
  28. Með hverjum fórstu síðast út að borða? Ástarpungnum mínum honum Pálma... á Apótekið 
  29. Ford eða Chevy? Ummm... Ferrari
  30. Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? 14 mínútur

Ég ætla að klukka: Pálma, Ingu Júlíu og Eyrúnu


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 16:44:57 / rakelola

Litadýrð

Samkvæmt skoðanakönnun er greynilegt að bleikur er langflottasti liturinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 11:59:03 / rakelola

Skoðannakönnun



Já, það er greinilegt að konur eru miklu betri bílstjórar en karlar!


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2005 11:47:48 / rakelola

Úfffff... ég fór á fyllerí!

 

 

Fyrir konur (eins og mig) eru til margskonar gerðir af fylleríum:

  1. Þetta er algengasta fylleríið, það er að segja þegar maður byrjar í fyrirpartýi hjá einhverrjum sem maður þekkir ekkert endilega neitt vel, fær sér nokkra bjóra eða eikkvað gott vín í góðra vina hópi, verður á endanum piss fullur og fer niður í bæ þar sem að maður eiðir hverri einustu krónu sem maður á í áfengi og að komast inn böll eða einhverja staði og svo vaknar maður daginn eftir helþunnur og langar bara að liggja upp í rúmi og sofa allan daginn (nema ég sem hef bara einu sinni verið þunn)
  2. Stelpudjamm er svona djamm sem að aðeins stelpur og hommar fara á þar sem að nokkrar vinkonur hittast og fá sér kanski að borða saman og drekka með því gott vín, fara svo niður í bæ (þar sem flest party enda) og hitta þar annaðhvort kærastana sína, fleyri vinkonur eða eikkverja aðra og detta í það og dansa af sér skóna framm á mogun og hittast svo daginn eftir í brunch og kjafta um hvern þær hittu og með hverjum þær fóru heim (þ.e. ef að þær eru á lausu) 
  3. Svo er það strákadjamm þar sem að ein eða tvær stelpur á lausu fara að djamma með fjórum, fimm, sex eða fleyri strákavinum og láta þá spandera í sig allt áfengi og bjóða sér inn á staði og böll og þess háttar og láta dekra við sig allt kvöldið en fara samt heim einar með sjálfri sér, eða allaveganna ekki með einum af strákavinunum sínum.
  4. Síðast en ekki síst er það “spontant” þar sem að þú situr kanski á kaffihúsi með nokkrum vinum þínum á miðvikudegi eða fimmtudegi og sötrar kakó og þið eruð að tala um fyllerí eða Roskilde-festival og allt í einu langar ykkur öll alveg rosalega á fyllerí en enginn segir neitt. Þannig að á endanum segir einn í hópnum “Æi, fock it... ég hringi mig bara inn veika á morgun” og þá rífa allir sig upp og hlaupa til og redda sér bjórum og doolies og skemmtilegheitum, fara svo eftir nokkra bjóra niður í bæ og hitta þar eikkvern ríkan gaur frá kanada sem dælir í mann Corona fötum og meira fjöri.

Ég fór semsagt á fyllerí af fjórðu gerð og það var massíft gaman ca. til klukkan hálf eitt þegar að Footlose, sem er “lagið” okkar Pálma kom, á fóninn og við misstum okkur í villtri sveiflu á dansgólfinu, Pálmi fór til hægri og ég til vinstri og við skullum saman þannig að hann fékk kúlu á ennið og ég stóð inni á baði með blóðnasir í 45mín!!!!!!!!!!!

 

 

Kvöldið mitt endaði semsagt ekki í eftirpartýinu hjá Þórunni eins og það átti að gera, heldur endaði það uppá slysadeild Landspítalans. Ég er nú samt ekki nefbrotin (sem betur fer) en nefið á mér er öruglega þrefallt stærra en það á að sér að vera og það er hálf fjólublátt... en sem betur fer hylja glerugun mín meiri hlutan af því!

 

 

 

Jájá... ég held að ég dansi ekki við mannin minn í nánustu framtíð!

 

 

 

 

 

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.10.2005 21:37:07 / rakelola

London

Já góðir landsmenn... ég er í london!


Ég er nú að heimsækja gamla settið sem, eins og flestir vita, hafa nú flutt aðsetur sitt til hingað. Við Clara Hrönn lögðum af stað frá Kópavogi um hádegisbilið í gær og brunuðum í einum grænum upp á Keflavíkur flugvöll. Ferðin gekk nú ekki þrautarlaust og byrjaði ferðin á því að fluginu var frestað um tuttugu mínútur því að flugvélin var sein úr öðru flugi. En við komumst að lokum í loftið og Clara var nú voðalega dugleg í vélinni (enda svaf hún mestan partinn af leiðinni), en svo þegar að við vorum komin yfir Londonarflugvöllinn þá var svo mikil traffik í loftinu að við þurftum að hringsóla yfir flugvellinum í aðrar tuttugu mínútur! Jæja, við fengum loksins að lenda, en þá var flugvélinni fyrst ekki beint í rétta átt, þannig að við vorum í korter að keyra að réttum landgangi, og svo var flugvélinni ekki beint nógu framarlega til að landgangurinn næði að flugvélar hurðinni, þannig að við þurftum að bíða í enn einar fimmtán mínúturnar eftir að dráttarbíll kæmi að draga flugvélina einhverja tvo til þrá metra svo að landgangurinn næði að hurðinni.

Þegar að komið var inn í “Terminal 2” var löng röð í vegabréfareftirlitið og eftir tíu mínútna bið fengum við Clara Hrönn nóg af þessu og löbbuðum bara fram fyrir alla röðina og hittum þar mann sem að hleypti okkur fyrir framan sig í röðina. Síðan þegar að við vorum komin í gegn um það komum við að farangurs-færibandinu og þurftum reyndar bara að bíða stutt eftir að litla taskan okkar kæmi í gegn en í staðin þurftum við að bíða þangað til að allar töskurnar úr vélinni væru komnar á færibandið áður en að við fengum kerruna hennar Clöru litlu, og þá var sú stutta orðin ansi pirruð, en annars búin að vera rosalega dugleg!

En þá hélt ég loksins að ég fengi að komast heim, en þá voru tveir karlar komnir að sækja mig, og ég vissi ekkert hvorn bílinn ég átti að taka þannig að ég þurfti að hringja í pabba til að vita hvern hann hafði pantað til að sækja mig, og það tók enn einar tuttugu mínúturnar að finna út úr þessu! Þá loksins var ég komin upp í bíl og var orðin ansi þreytt á öllu þessu veseni, og var mjög sátt við að setjast upp í bílinn, en þá var Clara Hrönn orðin svo þreytt og pirruð að hún reygði sig og teygði og urraði og vældi alla leiðina í bílnum þannig að ég fékk enga hvíld fyrr en að við vorum komin heim til mömmu og pabba, og nota-bene þá tekur bílferðin frá flugvellinum og heim á Montpelier street ÞRJÁTÍU OG FIMM MÍNÚTUR!

Út af öllum þessum senkunum, röðum og hártogunum tók ferðin samtals SJÖ OG HÁLFAN KLUKKUTÍMA og Clara Hrönn fór ekki að sofa fyrr en á miðnætti, og ég fór enþá seinna að sofa!

En þannig var nú það!
Góða nótt góðir hálsar - nær og fjær!

Anna Rakel J

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2005 11:52:56 / rakelola

Efnafræði...

Hmmmm....

Ef hraði 1. þreps << hraði 2. þreps ræðst heildarhraðinn af hraða 1. þreps. Heildarhraðinn er u.þ.b. = hraði 2.þreps = K2 [M][B]
En þar sem [M]=[A] fæst heildarhraðinn K2=[M][B]= K2=[A][B]
þ.e. háðum styrk beggja hvarfefna (2° hvarfhraði)

Er einhver sem að skilur þetta... úff... all you people out there sem kunna eithvað í efnafræði, please contact me ASAP!!! Því annars er ég screwed!!!!!

HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Myndasöfn